Við mælum með reglulegum þrifum einu sinni á viku eða tvisvar á viku. Það fer eftir fjölda eininga og íbúa í sameign og hvernig sameignin er uppbyggð. Mikilvægt er að setja mottur við alla innganga. Þess utan bjóðum við upp á ýmsa sérhæfða þjónustu sem allir í reglulegum þrifum hjá okkur fá afslátt af. Við leggjum okkur fram að veita faglega og trausta þjónustu.
Stærð húsfélags 15 eða fleiri einingar

Þjónusta sem við mælum með fyrir meðalstór húsfélög
Mikilvægasta stoð allra húsfélaga. Tryggja þarf að þrifin séu vel útlistuð og framkvæmd í hverri viku.
Svokölluð jólahreingerning eða ítarlegri þrif. Mikilvægt er að taka svona þrif einu sinni á ári til að skítur sem safnast á erfiðari staði sé tekinn.
Farið í djúphreinsun á teppum til að ná erfiðstu drullunni og bæta gæði lofts í sameign. Líkt og teppið heima hjá þér þá safnast mikil óhreinindi í teppi.
Góðar mottur í sameign eru mikilvægasta forvörnin til að tryggja hreinlæti á sameign. Við erum með sérstaka lausn í þeim málum: mottulausnir.is
Við bjóðum upp á glerþrif fyrir húsfélög. Allir í húsfélagsþrifum fá þau á sérkjörum. Sjá nánar á glerthrif.is
Mikið af því fína ryki sem berst inn í sameignina kemur með sóti og drullu frá bílunum. Með ryksugun á kjallaranum 1x – 2x á ári getur þú komið í veg fyrir að mikið af því berist inn í sameign.
Hvað er almennt innifalið í reglulegum þrifum
Teppi í sameign ryksuguð
Anddyri ryksugað og skúrað
Snertifletir eru þrifnir
Þurrkað af yfirborðsflötum
Blettir á veggjum
Lyfta þrifin, ryksuguð og skúruð
Stigahandrið þurrkað af
Hurðakarmar þrifnir
Póstkassar eru þrifnir
Gólflistar eru þrifnir
Þvottahús og tæknirými
Hjólageymsla

Hvernig fara þrifin fram?
Allir okkar starfsmenn fá þjálfun í þrifum og þeirri tækni sem tryggir gæði og vel klárað verk. Sjá samfélagsstefnu okkar hér.
Endilega hafðu samband 🙂
